03desember

Búið:)

...eða að verða búin þessi viðvera mín í Belgíu. Fyrir þá sem ekki vita þá hef ég ákveðið að fara heim, ákvað það fyrir svona 2 vikum síðan. Ég áttaði mig bara á því að ég er ekki þessi skiptinema típa, þetta er bara ekki fyrir mig:) svo ég kem heim á föstudaginn 7. des. 

Hef svo sem ekkert að segja meira um málið, þetta er bara einfalt:P 
hlakka bara til að sjá ykkur heima:D

Sibba


03. desember 2007 klukkan 18:23
Sigurbjörg Inga Björnsdóttir
1 athugasemd
17nóvember

jæja..

tíminn líður, 3 mánuðir að verða búnir og 7 eftir! 
Um síðustu helgi fórum við í mat á föstudagskvöldi til systur Nathalie og fengum þar pizzu, hún var nú ekki alveg eins góð og heimagerða pizzan hennar mömmu:) Á laugareginum fór ég með Mat og vinkonum hennar á "soupe" það var svona fjáröflun fyrir einhver bekk í skólanum og var það svona kvöldmatur og svo ball á eftir, mjög gaman það bara. En svo minnir mig að ég hafi ekki gert neitt á sunnudeginum. Á síðasta miðvikudag þá tókum við strætó heim úr skólanum, erum alltaf sóttar, en þegar við stoppuðum á einni stoppustöðinni þá biðu þar ca. 15 löggur og réðust inní strætóinn, ég vissi  ekki hvað var eiginlega í gagni, en þá voru þær að tékka hjá öllum hvort fólk væri með strætókort eða hafi borgað, en svo voru nokkrir sem voru tekknir út úr strætóinum og yfirheyrðir, veit ekki útaf hverju en ætli þeir hafi ekki bara verið með úrelt kort eða ekki borgað eða eitthvað?! 
Á fimmtudaginn kallaði Yvan í mig og sagði mér að það væri eitthvað í sjónvarpinu frá Íslandi, þá var það einhver gömul kona að sýna hraunköggla í garðinum sínum, haha merkilegt alveg, svo óspennandi, en þessi kona var Björnsdóttir og þá spurði Nathalie mig " er hún frænka þín:O? svolítið öðruvísi nafnakerfið allstaðar annarsstaðar en á Íslandi, svo daginn eftir þegar ég fór í leikfimi í skólanum þá sagði íþróttakennarinn minn að hún hefi séð í sjónvarpinu eitthvað frá Bláa Lóninu, spurði mig svo hvort ég hefði farið þangað og hvort þetta væri ekki alveg "super" ég sagði að sjálfsögðu jú! ég hæli Íslandi alveg eins og ég get ef fólk spyr mig eitthvað um það:) 
Áðan fór ég í myndatöku! hef svo sem ekkert að segja meira um það, bíð bara eftir að fá myndirnar;)

þar til næst.. 

Síba
17. nóvember 2007 klukkan 13:37
Sigurbjörg Inga Björnsdóttir
7 athugasemdir
08nóvember

Brussel

Jæja stórum áfanga í lífi mínu er náð.. ég las fyrir framan allan bekkinn minn á frönsku í dag!! Er nokkuð stolt bara, ætlaði ekki að þora að gera það en svo bara jú ég les! Svo var eitthvað orð sem ég sagði eitthvað vitlaust og það sprungu allir úr hlátri.. huh.. en samt á góðan máta. 

 

Síðasta mánudag þá fór ég til Brussel og var það bara fínasta ferð. Fórum með lest kl hálf átta og vorum komin eitthvað um hálf 10, tek það fram að það tekur ekki 2 tíma að fara til Brussel, við stoppuðum á mörgum stöðum og þurftum að bíða og svona. En eitt það fyndnasta atvik sem ég hef bara lent í var þegar við vorum komin til Brussel og vorum að fara úr lestinni. Þannig var að  ég og vinkona mín hún Perrine vorum eitthvað aðeins á eftir öllum bekknum, alls ekki mikið samt, og þegar við vorum að koma að hurðinni á lestinni þá bara horfðum við á hana lokast! Ég alveg sprakk úr hlátri, bara trúði ekki að þetta væri að gerast, en við allavega fórum bara áfram með lestinni við tvær og lentum í suður enda Brussel, en allir hinir fóru út í norður enda Brussel. En Perrine byrjðai að hringja í kennarana alveg í stresskasti og vissi ekkert hvað við áttum að gera, en við fundum svo lest sem fór aftur til baka eftir mikil hlaup og vesen. En hefði ég verið ein, og það munaði sko ekkert miklu að ég hefði bara verið ein, þá bara hreinlega veit ég ekki hvað ég hefði gert! Ég hefði farið að grenja örugglega! haha. En þegar við hittum hópinn svo aftur þá voru allir með svona hneyksli svip og voru geggjað fúl útí okkur ... þau þurftu nefnilega að bíða eftir okkur í svona ca. 20 min. En við löbbuðum svo inní bæ og fórum í eitthvað hús, veit ekkert hvað þetta var, skóli eða ég bara veit það ekki, og þar vorum við að gera eitthvað verkenfi um Bólivíu (land) fengum svo að smakka einvher Bólivískann drykk, einhverskonar te, og ég hef ekki smakkað það verrra, það var klórlykt af þessu. En eftir það löbbuðum við svo í miðbæinn og þá var okkur skipt í hópa og áttum við að fara í einhverja sérstaka búð og spurja afgreiðslufólkið spurninga um e-ð, ég skildi ekkert. En svo fórum við bara og fengum okkur að borða á Quick sem er eins og McDonalds, og fórum svo heim eftir það. 

 

Fékk að vita það í skólanum í dag að bekkurinn er að fara í dagsferð til Englands 20. des:D hlakka pííínu til... 

 

En hef ekkert að segja meira skemmtilegt..  setti inn nokkrar myndir frá Brussel

 

Au revoir

 

-Sibba

 

08. nóvember 2007 klukkan 17:57
Sigurbjörg Inga Björnsdóttir
5 athugasemdir
29október

blogg

Góðu lesendur ég hef ákveðið að blogga aðeins oftar fyrir ykkur. Ætla bara að segja frá hvað ég gerði um helgina, þar sem ég gerði ekkert merkilegt en að fara í skólann í síðustu viku. 

Á föstudaginn eftir skóla fór ég með Mathilde og vinkonum hennar að leita að einhverjum stað til að fá okkur eitthvað að borða, fundum svo einhvern stað eftir mikið labb og fengum okkur allar franskar, það er mikið borðað af frönskum hérna, og Belgar eru rosalega stoltir af frönskunum sínum, alltaf verið að spurja mig hvort það séu franskar á Íslandi! En eftir að við vorum búnar að borða löbbuðum við í sundlaugina og fórum í sund. Þar sá ég svona skilti sem stóð á "Skylda að vera með SUNDHETTU!" jii ég tók alveg andköf og var sko að pæla í að hætta við að fara í sund:/ en ég var auðvitað ekki með neina sundhettu þar sem ég hafi ekki hugmynd um að það væri skylda svo ég fór bara ofan í sundlaugina án þess að hafa sundhettu, þá var sundvörðurinn fljótur að koma og rétti mér eitt stykki, svo mér leið ógeðslega kjánalega þarna með sundhettu!! Eftir sundið sótti Nathalie okkur og hún var á einhverjum bíl sem þau voru með í láni, en þessi bíll var bara fyrir 4 og var með rafmagnshurðum, en við fórum bara inní í bílinn og Nathalie keyrði á stað en hurðin á bílnum var ennþá opin því Mat gat ekki lokað hurðinni, hún fann ekki takkann til að loka en Nathalie var ekkert að pæla í því að stoppa bílinn strax, öskraði bara "LOKAÐU HURÐINNI" hahaha  og vá ég var alveg að springa úr hlátri þarna aftur í bílnum, og fólk sem var þarna úti var rosalega hissa á svipin eitthvað, við þarna að keyra með opna hurð! 

Á laugardaginn fórum við að skila þessu bíl, sem við vorum með í láni sem sagt, og æluðum bara að ná í bílinn "okkar"  hélt ég en nei þá fórum þau bara og keyptu nýjann bíl handa Nathalie... held ég! En svo um hádegið vorum við bara að fara í búð að verlsa fyrir afmælið hennar Mathilde sögðu þau mér, en við vorum alveg búin að keyra í svona 3 korter þegar þau sögðu mér að við værum komin til Frakklands, þannig við vorum að fara í svona risa matvöru magsin og það var allt þarna gjörsamlega og ótrúlega stórt. Þau fylltu alveg 2 risa kerrur af mat og svo eru engir pokar í búðum hérna, svo fólk bara setur allt á búðarborðið og setur svo allt aftur í körfuna þegar það er búið að borga, svo við keyrðum heim með fullt skott af mat. Þessi ferð var alveg frá 1 um heádegi og við vorum ekki komin heim fyrr en um 6 leytið.  Þá fórum við að elda fyrir afmælið og ég fékk það hlutverk að skera sveppi og við erum að tala um 4 risa box af sveppum, Nathalie sagði við mig að ég mundi örugglega bara dreyma sveppi næstu nótt;) 

Á sunnudeginum var svo afmælið, og það komu 18 manns. Afmælið byrjaði kl hálf 1 og gestirnir fóru kl 20. Svo ég var alveg búin eftir daginn að reyna að troða enhverri frönsku útúr mér allan daginn. En það sem var að borða var.... í for for for rétt var snakk og hnetur og svona eitthvað, svo í for for rétt var brauð með sveppumnum sem ég skar, í forrétt var súpa og svo kom aðallrétturinn sem var kartöflukratín og kjöt og sósa og fleira. Svo var komið að eftirréttunum og þeir voru.. fyrst voru kökur, svo voru allskonar ostar sem mig langaði ekkert rosalega í, en ég var spurð 4 sinnum án djóks hvort ég vildi ekki fá mér osta og ég sagði alltaf nei, svo í 5 skiptið var ég spurð og þá gafst ég nú upp á nei- inu og sagði "Ok ég skal fá mér ost" vá ég var orðin pirruð sko! svo var komið með súkkulaði og kaffi í restina. Þetta tók alveg allan daginn þar sem það var alltaf gott millibil milli máltíað. Svo var þarna gömul kona sem er móðursystir Nathalie og hún er nunna! hún var samt ekki í nunnubúning (vissi ekki að það væri hægt:/)  svo ég hafði ekki hugmynd um það fyrr en hún sagði mér það. Hún spjallaði alveg helling við mig og ég sagði henni að það byggju nunnur við hliðina á mér heima og hún fór þá að spurja hvað þær gerðu og svoleiðis. Svo var hún að spurja mig hvort ég ætti kærasta og hvað hann héti og svona. Ég sagði henni að hann héti Billi eða hann heitir Billi;) og þá sagði hún  " Ha Pilli.. og ég neinei Billi, jáá Peli, eins og fótboltamaðurinn, ég: neinei BILLI, B ekki P" hahaha ég hló svo mikið eftir á, og svo spurði hún mig hvað Björn litli bróðir minn héti af þvi að það er mynd af mér og honum í stofunni hérna, svo ég sagði " hann heitir Björn,  hún: Pjoörr ég: björn, hún: Pjarn ég: björn, hún: Pierre, eins og Peter á ensku sagði hún svo, ég: neinei Bé Joð O Err Enn, ekki P" hahah svona gekk þetta í dágóða stund að reyna að útskýra þessi skrýtnu íslensku nöfn fyrir henni;) 

Jæja þessi helgi var nú bara mjög skemmtileg fannst  mér, svo er ég í frí núna alla þessa viku:) veit enn ekkert hvað ég mun gera. 
Ég vil comment frá öllum, plíís:)
*SIBBA*
29. október 2007 klukkan 11:48
Sigurbjörg Inga Björnsdóttir
10 athugasemdir
23október

...

jú það er kominn tími á blogg núna. Á morgun eru akkurat 2 mánuðir síðan ég fór og einungis 8 mánuðir eftir;)
Um þar síðustu hegi fórum við á blessaðann bátinn og var það ferð sem skemmdi bátinn! þannig var að Mathilde var að stýra bátnum og það er mælir sem stendur hvað eru margir metrar til botns og oftast eru það svona 5-9 metrar, en svo var ég bara að horfa eitthvað í kringum mig og tók eftir að það var óvenjumikið af svona sjávargróðri í vatninu svo ég leit á mælinn og þá stóð bara 0,4 metrar til botns:/ ups.. pabbinn var ekki alveg að fylgjast með dótturinni og allt fór í klessu.. en Yvan setti allt í botn með þeim afleiðingum að það brotnaði stórt stykki af mótornum. 
Síðustu tvær vikur var bekkurinn minn í starfsþjálfun, voru öll á mismunandi stöðum að vinna svo ég var ein í skólaum eða þannig, án vina minna en ég kynntist stelpu sem er líka skiptinemi frá Argetínu en hún er samt ekki með AFS, en við vorum mikið saman svo þetta voru fínar tvær vikur. 
Um síðustu helgi þá fór ég í Walibi sem er tivoli með Mathilde. Var ótrúlega gaman fannst mér þar sem ég hef aldrei farið í svona almennilegt tívolí áður;) en ég fór í fullt af rússíbönum, fallturn, draugahús og allskonar, svo var þetta með svona hrekkjavökuþema, fullt af svona ljótum köllum í búningum sem voru að elta mann og eitthvað. Svo á sunnudeginum þá fórum við í barnaafmæli, drengurinn var held ég 11 ára og veislan var bara haldin í sal og fengum við 3 rétta máltíð bara. Þetta var ekki svona hefðbundið afmæli með bara kökum og kaffi;) svona er þetta mikið hérna held ég.. 
Í morgun þá var eyða í fyrsta tíma svo ég fór með 3 vinkonum mínum á kaffihús og fengum okkur kakó, gott í þessum rosalega kulda hérna, það er um frostmark á morgnana núna þessa dagana. Á morgun á Mathilde afmæli og ætlum við og nokkrar vinkonur að fara á veitingastað og fá okkur eitthvað eftir skóla. Svo á fimmtudaginn þá er bekkurinn að fara í bíó kl 2 veit samt ekkert hvaða mynd við erum að fara á, það kemur í ljós. Alla næstu viku er frí í skólanum, örugglega vetrarfrí eða eitthvað.. hef ekki hugmynd, en veit ekkert hvað ég mun gera þá,  svo eftir fríið á mánudegi 5. nóv þá fer bekkurinn til Brussel:D hlakka svo til...

En jæja þangað til næst..

Sib
23. október 2007 klukkan 19:08
Sigurbjörg Inga Björnsdóttir
8 athugasemdir
08október

:)


Það er kominn 8. október en mér finnst eins og mánuðurinn hafi bara byrjað í fyrradag! 

Í síðustu viku var ég bara í skólanum.. gerði held ég ekkert annað 
Lenti samt í skemmtilegu atviki á föstudaginn í skólanum, ég sat bara úti og var að bíða eftir að hliðið opnaðist en þá komu tveir strákar og fóru að syngja fyrir mig, báðu mig bara um að nefna eitthvað heit á lagi og þeir ætluðu að syngja það fyrir mig:) hehe ég nefndi nú ekkert en þeir sungu samt eitthvað;) 

Á laugardaginn var markaður í bænum mínu og ég og Mathilde vorum að selja eitthvað gamalt dót sem þau áttu, t.d eins og spil, gamla heimilssíma og annar þeirra kostaði 1 evru ( ca. 89 kr), bækur og eitthvað fleira. Svo kom vinkona Mathilde og var með okkur, stundum skildu þær mig bara efitr eina að selja þetta, var samt svo stressuð eitthvað en það seldist náttúrulga mest bara þegar ég var ein! alveg dæmigert! Seldi meðal annars símann á 1 evru, svo var fólkið eitthvað að spurja mig hvort ég væri viss um að hann virkaði.. ég sagði bara já.. hafi ekki hugmynd um það. En við vorum þarna frá 10 til 4 eða ég allavega.. Mathilde og Natalie fóru þangað kl 7 um morguninn að setja þetta upp og svona, en ég gafst svo upp og fór heim kl 4. Ég keypti mér geggjaða converse skó þarna á 25 evrur, kosta venjulega 69 evrur svo ég gerði góð kaup. Um kvöldið fóum við á ball  ég, Mathilde og vinkona hennar og vara bara mjög gaman, engar flautur núna eins og síðast. 

Sunnudagurinn fórum við svo á bátinn sem þau eru nýbúin að kaupa, fórum um kl hálf 12 en vorum ekki farin á stað (sigla)  fyrr en kl 2 eða eitthvað.. var alveg endalaust vesen eitthvað að koma bátnum útí vatnið, byrjaði með því að Yvan datt í vatnið og rennblotnaði, fólk sem var þarna hló alveg rosalega af honum.. haha þetta var svo kjánalegt, svo þegar báturinn var loksins kominn útí fór hann ekki í gang! flott! en eftir langa bið fór báturinn loksins á stað og við sigldum til 4 fórum svo heim. 

Næstu tvær vikur er bekkurinn minn í starfsþjálfun svo stundataflan mín er rosalega sérstök núna, í dag t.d var ég bara í frönsku, skiptir svo sem ekki miklu máli þar sem allir tímarnir eru náttúrulega á frönsku og ég skil ekki mikið. 

Jæja hef ekkert að segja meira.. 

sibba :)  
08. október 2007 klukkan 15:21
Sigurbjörg Inga Björnsdóttir
10 athugasemdir
30september

...

Mér finnst vikurnar orðnar svo fljótar að líða núna, bara strax komin helgi alltaf.. enda er það bara jákvætt. En síðustu helgi þá fór ég í Welcome partýið og hitti þar skiptinemana sem eru í Namur, erum ca. 20, en allavega fór ég með pönnukökur og fannst fólki þær bara ótrúlega góðar:) svo var þarna matur frá hinum ýmsu löndum og misgóður, t.d fékk ég mér eitthvað sem leit út eins og þunnt brauð með súkkulaði en nei þetta var einhverskonar kæfa sem bragðaðist svo illa að ég gat ekki borðað þetta, greyið stelpan sem kom með þetta var eitthvað að reyna að afsaka þetta og segja að þetta væri mjög sérstakt, gat enginn étið þetta. En þetta kvöld var bara mjög skemmtilegt, þurftum svo að fara uppá svið að kynna okkur á frönsku, það gekk líka bara vel hjá mér:) 
Fyrr um daginn var markaður í bænum mínum, ein aðalgatan var bara tekinn undir þennan markað, en þarna var fólk að selja allskonar dót, bæði notað og nýtt, en þarna var alveg hellinugr af fólki og gaman að skoða. Svo fórum við að skoða einhvern bát sem Yvan var að pæla í, alveg rosalega ljótur fannst mér, pínulítill og appelsínugulur, fengum svo aðeins að prufa, fórum svo að skoða annann bát sem hann var líka að spá í sem var miklu flottari, svo daginn eftir (sunnudag) fengum við að prufa hann líka, ég og Mathilde fengum að sitja framan á bátnum, mjög gaman og í 23 stiga hita. En það endaði með því að Yvan keypti þennan bát. 

Enn get ég talið upp eitthvað sem er öðruvísi í skólanum, t.d. þá er einn kall sem labbar á milli stofa og merkir við þá sem eru ekki mættir, kennarinn gerir það ekki, svo eru allir krakkarnir sem skrifa í reiknisbækur glósur og annað, skirfa ekki bara í venjulegar stílabkur, skrítið! Svo á morgnana, í löngu frímínútum og í hádeginu þá þurfum við alltaf að bíða úti eftir kennaranum og vera samferða honum upp í stofu.  Svo eru svona Jesú styttur útum allann skóla. 

Síðasta fimmtudag var frí í skólanum, ei veit ég af hverju, en þá fórum við bara í búðir og eitthvað "fjölskyldan". Svo í gær þá fórum við á markað sem var hérna í öðrum bæ, hverja helgi þá er sovna markaður einhvernstaðar, rosalega mikið af þessu, en þar var hægt að fá allskonar dót, og allt alveg rosalega ódýrt, t.d keypti ég mér leggings, belti, og peysu á 15 evrur, svo keypti Natalie sér mjög fína úlpu á 5 evrur. 

Ég gelymdi alltaf að segja frá því að "fjölskyldan" gaf mér lítinn bangsa þegar ég kom og svo var kort með og þau höfðu skrifað smá kveðju á íslensku.. en svona var það
             "Velkominn á okkar heimili. Við hafa the ánægja af hluti þessi ár með þú." 
Smá svona orðabóka texti;) 

Á föstudaginn fékk ég þessar hræðilegu fréttir að Jón Gunnar frændi hafi lent í alvarlegu bílslysi en ég trúi því að hann muni ná sér að nýju.  Jæja ég hef svo sem ekkert að segja meira í þetta skipti, held ég bloggi bara á sunnudögum svona um vikuna sem leið:) 

Sæl að sinni
 
Setti inn fáeinar myndir! 

Sibba
30. september 2007 klukkan 10:09
Sigurbjörg Inga Björnsdóttir
2 athugasemdir
19september

salut

Mmmm sit hérna í herberginu mínu er að gæða mér á gómsætu marsípan súkkulaði sem mamma sendi mér síðasta föstudag ásamt pönnukökupönnu, sítrónu- og vanilludropum og fullt fleira skemmtilegt. En allavega er pönnukökupannan fyrir Welcome Party fyrir skiptinemana og host fjölskyldurnar sem verður haldið á lugardaginn næstkomandi, og þá eiga allir að koma með eitthvað sérstakt frá sínu landi. 

Það sem hefur drifið á daga mína er bara skóli, er búin að vera núna í skólanum í 3 vikur og skil alltaf meira og meira í frönskunni, en ég er samt ekki farin að geta talað mikið ennþá, en það kemur. Langar aðens að segja meira  hvað er öðruvísi við skólann hér, allavega þá er múrveggur alveg í kringum skólann og svo bara hlið til að komast inn, og ef maður kemur of seint í skólann er ekkert sjálfsagt að komast inn fyrr en um bara hádegi, þá er opnað og hægt að fara inn eða útí sjoppu eða e-ð. Svo eru engar klukkur í stofunum, hér er bara farið eftir skólabjöllunni, og það má ekki fara fyr útúr stofunni, bara þegar bjallan hringir þá má fara. Hér skrifa allir með penna eða blekpenna, urðu allir rosalega hissa þegar ég byrjað að skrifa glósur með blýanti, svo spurðu þau hvort við skrifuðum með blýanti í prófi, og já það gerum við heima.. en ekki hér. 

Síðasta laugardag sat ég í rólegheitum mínum uppi í tölvunni þegar Natalie kallaði á mig og sagði að það væri samtal við mig niðri. Ég fer niður og þar sitja tvær löggur við stofuborðið, og með byssur líka, ég bara bauð góðan daginn og settist þarna, en það eina sem ég þurfti að gera var að skrifa nafnið mitt á blað, vissi reyndar ekkert fyrir hvað það var, en þetta var ekki meira.                                                            Sama dag fórum við í leiðangur að kaupa bækur, löbbuðum svo framhjá alveg fullt af flottum búðum sem mig langaði alveg hrikalega í, eins og H&M og fullt af flottum búðum. En í staðin fórum við í búð eins og Húsasmiðjan eða eitthvað og vorum að skoða hurðir í svona 1 og 1/2 klukkutíma:/ var orðin frekar þreytt þegar við fórum loksins heim en þá ákváðu þau að fara í aðra búð með hurðum og skoða meira! úff.. var alveg að mygla, en fórum svo á endanum heim. Á sunnudaginn fórum við í sund ég og Mathilde og á meðan biðu Yvan og Natalie eftir okkur, og hérna er sko klefasistemið allt öðruvísi! allir bara sama í klefa, og sameiginlegar sturtur, en allir auðvitað í sundfötum, svo ég var bara í sturtu við hliðna á karlmanni :/ frekar óvenjulegt, svo fórum við á kaffihús og fengum okkur glæsilegann ísrétt og heitt kakó.

Gaman að segja frá allavega spurnigum sem ég fæ hérna.. um daginn var ég spurð hvort það væru TOYOTA bílar á Íslandi! já í meirihluta mundi ég segja! Svo var ég spurð hvort ég hafi komið með flugvél til Belgíu, og hvort það væru flugvellir á Íslandi! Héldu að ég hefði jafnvel komið með skipi. Og svo var ég spurð hvort fólk byggji í tréhúsum á Íslandi!                                                                               Já fólk veit svona mis mikið um heiminn...

 Jii ég var að koma úr búðarleiðangri með Natalie og Mathilde rétt áðan og við sáum mann sem var klæddur í stutt pils, var í háhæluðum skóm, og í konujakka með tösku, og með frekar sítt hár:/ kannski klæðskiptingur?! ;) en jæja ég er búin að vera að skrifa þetta litla blogg síðan um hádegi svo ég væri til í slatta af commentum núna:D 

Sibba

19. september 2007 klukkan 18:25
Sigurbjörg Inga Björnsdóttir
9 athugasemdir
10september

blogg nr. 4

... Gosh var búin að skrifa ritgerð.. en kabúmm kom ekki! frábært.. byrja þá bara aftur:)

Búin að vera hérna í rúmlega 2 vikur en verð eiginlega að viðurkenna að tíminn hefur nú ekkert flogið í burtu finnst mér. Er svo búin að vera í viku í skólanum og hef bókstaflega ekki gert neitt, hef eiginlega bara horft útí loftið og valla vitað í hvaða tíma ég er, skil ekkert hvað er í gangi! Bekkurinn minn er í 14 fögum takk fyrir(íþróttir þar inní) en ég er núna hér eftir bara í ca 6 fögum, fór til skólastjórans í dag að velja tíma. Þessi skóli er eiginlega allt öðruvísi en heima. Hér fara allir inná skónum, erum með úlpurnar bara á stólunum og við erum alltaf í sömu stofunni, kennararnir fara bara á milli. Í hádeginu þegar við erum búin að borða þá erum við alltaf rekin út, mér líður bara eins og ég sé aftur komin í grunnskóla. 
Ég er í 6 TQS sem er efsti bekkurinn í skólanum(18 ára) , og þau sem sagt útskrifast í vor. Mér finnst voðalega strankt allt hérna, ef maður kemur of seint þarf maður að koma með undiskrift  frá skólastjóra eða eitthvað, svo um daginn þá var einn gæinn sem fékk að fara á klósettið í tíma, svo þegar hann kom aftur þá labbaði hann bara inn í stofuna, bankaði ekki eins og á að gera, og hann bara fékk ekki að koma aftur í tímann:/ algjör herfa þessi kennari líka! svo það er eins gott að banka alltaf áður en maður gengur inn í stofuna. Svo eru kennararnir alltaf kallaðir Monsieur og Madame( herra og frú) svo maður veit ekkert hvað fólkið heitir. 
Ég er alltaf búin í skólanum annað hvort kl 15:20 eða 16:10 og svo á miðvikudögum erum við alltaf búin kl 12:00 sem er nokkuð gott. 
Síðasta föstudag fórum við í mat til ömmunnar og afans og í matinn var held ég kálfakjöt, allavega sögðu þau að þetta væri baby cow;) en ég var alveg ónýt í maganum eftir þetta, allt kvöldið og allan næsta dag:S maður veit svo sem ekkert hvað maður er að éta hérna. En sama kvöld fór ég með Mathilde og 2 vinkonum hennar á ball og það var bara mjög gaman. Eina sem var pirrandi var að það voru allri með einhverjar flautur (svona dómaraflautur) og endalaust að flauta og endalaus háfaði sem skar í eyrun, en annars mjög gaman. 
Jæja hef ekkert að segja fleira..

...þangað til næst

Sibba
10. september 2007 klukkan 19:26
Sigurbjörg Inga Björnsdóttir
4 athugasemdir
03september

Blogg nr. 3

Jæja margt hefur gersts síðan síðast. Fann myndirnar mínar, þær höfðu ekki eyðst úr tölvunni, þannig þið fáið að sjá fleiri myndir:) 

Á fimmtudaginn síðasta fórum við í einhvern bæ, man ekki hvað hann heitir, en þar skoðuðum við bara í búðir og fengum okkur kúluís. Eftir að hafa verið þarna í dágóðann tíma fórum við í mat til systur Natalie. Þar fengum við bara venjulegann grillmat eins og heima á íslandi, kjöt, kartöflur og salat, var bara mjög fínt. Þetta fólk var með fullt af dýrum, hunda, ketti, hesta,  eru meira að segja með einn íslenskann hest sögðu þau mér, og hænur, fugla í búri og ég veit ekki hvað meira, enda var konan dýralækir. Keyrðum svo heim um kvöldið og það tók 1 ½ tíma, ættingjarnir búa ekkert í næsta nágrenni þarna. 

   Gerði ekkert sérstak fyrr en í gær sunnudag. Í hádeginu komu nágrannar í heimsókn. Þeim var boðið uppá áfengi:S þau fengu sér breezer og Yvan og Natalie (mamman&pabbinn) fengu sér eitthvað áfengi, rauðvín eða eitthvað. Mér var boðið áfengi en ég þakkaði pent fyrir og fékk mér bara appelsínudjús, enda ekki vön að fá mér áfengi um hádegi á sunnudegi. Svo er svo ótrúlegt að fólk keyrir alveg eins og ekkert sé þó það sé búið að drekka nokkur glös af víni! 

Um kl 3 fórum við í hellaskoðun sem er bara hérna rétt hjá þar sem ég bý, með frænda Yvans, konu hans og skiptinema sem er hja þeim frá USA. Löbbuðum þarna lengst ofan í jörðinni, mjög þröngur og blautur gangur, svo var vatn þarna niðri svo við fórum á bát í gegn, stundum var svo lágt til lofts að við þurftum að beygja okkur niður í bátnum, held að móðir mín hefði nú fengið nett mikla innilokunarkennd þarna niðri. ;)

  Eftir hellaskoðunina lá leið okkar í bjórverksmiðju, ein að mörgum skilst mér í Belgíu. Þar fengum við okkur að sjálfsögðu bjór, ég fékk mér kirsuberjabjór, kannski meira fyrir konur heldur en karla, en hann var bara mjög góður fannst mér. Það var líka hægt að fá eplabjór og barnabjór og ég veit ekki hvað og hvað;) Fórum svo bara heim, og aðh sjálfsögðu keyrði kallinn heim eftir 3 glös af bjór:/ og keyrði líka á 140 km hraða! 

   Verð að segja frá matnum sem ég var að láta ofan í mig núna rétt áðan.. held að það hafi verið bara eitt það ógeðslegasta sem ég hef á ævi minni látið ofan í mig, en þetta var eitthvað kjöt með sósu, eitthvað amerískt, bara hrært saman, og þetta var hrátt! Þetta var bara eins og ég væri að borða hrátt hakk, fékk alveg bara æluna í hálsinn, gat samt ekki sagt annað en mér finndist þetta bara ágætt, þar sem þetta er uppáhald þeirra. Líður ekkert alltof vel í maganum eftir þetta. 

    Mér finnst svo fyndið og kjánalegt þessi kossavitleysa í Belgum. Ég þarft til dæmis að kyssa á kinnina alla ættingja og vini fjölskyldunnar sem við hittum, og Yvan og Natalie bæði kvölds og morgna:S  bíð bara eftir að þurfa að kyssa kennarann á kinnina:S úff ætla rétt að vona að það sé ekki;) En samt er voðalega ljúft að vera hérna.. allt svo rólegt og þægilegt

 Fékk eina skemmtilega spurningu um daginn.. how many years to fly from Iceland to Belgium?? 

ég: uhm.. do you mean hours?!

Fólk ekki alveg með enskuna á hreinu hérna.. enda allt sjónvarpsefni talsett.. bókstaflega allt!

 

netið er eitthvað að deyja svo ég set myndir á morgun:)

 

Sibba

 

03. september 2007 klukkan 18:01
Sigurbjörg Inga Björnsdóttir
7 athugasemdir

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sigurbjörg Inga Björnsdóttir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...